top of page
Fire Alarm

Eldvarnareftirlit

þar sem fagmennska mætir áreiðanleika.

● Mánaðarlegt eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja og húsfélaga.

● Sinnum hlutverki eldvarnafulltrúa í fyrirtækjum.

● Umsjón með árlegu eftirliti og þjónustu á slökkvibúnaði hjá eftirlitsaðilum.

● Samskipti við slökkvilið.

● Fylgjum eftir athugasemdum úr eigið eldvarnaeftirliti og skoðunum eftirlitsaðila.

● Við vinnum með staðlaðri tækni og fylgjum lögbundnum reglum um eldvarnir.

Umsjonogreksturicon.jpg

Við gerum verðkönnun ogúttekt á ykkar eign.

  • Sérfræðingur framkvæmir úttekt á öryggismálum í samráði við formann húsfélagsins og metur þarfir eignarinnar.
  • Skýrsla með tillögum að miðlægu aðgangsstýringar- og/eða öryggiskerfi er útbúin, byggð á faglegri áhættugreiningu fasteignarinnar.
  • Kostnaðaráætlun fylgir með og tryggir gagnsæi í áætluðum kostnaði, þannig að stjórn húsfélagsins hafi fulla yfirsýn áður en ákvörðun er tekin.
  • Tilboðum er aflað, þau greind og borin saman til að tryggja bestu mögulegu lausn fyrir húsfélagið, bæði hvað varðar verð og gæði.
  • Formaður fær minnisblað með niðurstöðum, þar sem lögð er áhersla á hagkvæmni, virkni og langtímaávinning valinnar lausnar.

     
Við sjáum um eftirlit og fylgjumst með uppsetningu.
 
  • Við hjá Umsjón og Rekstur tryggjum að uppsetning aðgangsstýringar- og öryggiskerfa fari fram í samræmi við samþykkt tilboð, gæðakröfur og faglega framkvæmd.
  • Eftirlit er haft með öllum framkvæmdaskrefum til að tryggja að allir þættir, þar með talið raflögn og virkni búnaðar, séu rétt uppsettir.
  • Farið er yfir reikninga og framkvæmdakostnað til að tryggja að þeir standist samþykkt áætlun og að verkefnið haldist innan kostnaðarramma.
  • Prófanir og afhendingarmat eru framkvæmd áður en kerfið er tekið í notkun, til að tryggja að allt virki hnökralaust og í samræmi við væntingar húsfélagsins.

     
Við sjáuum um rekstur og
höfum umsjón.
 
  • Við sjáum um rekstur og umsjón aðgangsstýringar- og öryggiskerfi fyrir húsfélög, með áherslu á öryggi, skilvirkni og aðgengi.
  • Kerfin eru undir stöðugu eftirliti í rauntíma, sem tryggir að þau virki áreiðanlega og án truflana – enginn þarf að eiga á hættu að festast í bílageymslu eða lenda í aðgangsvandræðum.
  • Íbúar hafa aðgang að þjónustuveri, þar sem allar skráningar og gagnaöryggi eru tryggð, og rétthafar eru rétt skráðir og uppfærðir eftir þörfum.
  • Innheimta þjónustunnar fer fram í gegnum húsgjöld, sem tryggir sanngjarna greiðsludreifingu og einfaldar umsýslu – hver greiðir aðeins fyrir sína notkun.

Með faglegri umsjón okkar er öryggiskerfið í öruggum höndum, reksturinn skilvirkur og íbúar njóta þægilegs og áreiðanlegs aðgangsstýringarkerfis.
bottom of page